Gamla Bókabúðin á Flateyri flytur inn mörg af fremstu og elstu vörumerkjum heims, sem hafa sannað sig með framúrskarandi gæðum og þjónustu í árhundruð. Þar sem verslunin flytur vörurnar sjálf inn fást þær ekki hjá öðrum söluaðillum á Íslandi.
Vöruúrval verslunarinnar er gríðalega fjölbreytt og skemmtilegt, eins og sjá má inn á vefverslun okkar: www.GamlaBokabudin.is en okkur langar þó að draga fram okkar átta vinsælustu jólagjafnirar fyrir jólin 2021.
Öll verð eru miðuð við smásölu, en við gerum fyrirtækum og stærri pöntunum auðvitað frábær tilboð.
Númer 1: Falcon kanna (8,900 kr)
Falcon könnurnar hafa verið gríðalega vinsælar hjá okkur frá upphafi, enda einstaklega smekkleg hönnun í fallegum litum sem prýðir öll heimili. Kannan er emileruð upp á gamla mátann og gerð til að endast. Falcon hefur verið að framleiða emileraðar vörur frá árinu 1920.
Númer 2: Kaweco Blekpenni (5,900 - 22,900 kr)
Kaweko blekpennarnir eru einstaklega vandaðir pennar á góðu verði. Kaweco hefur sannað sig sem einn mest spennandi blekpennaframleiðandi síðustu ára, en framleiðslan hófst árið 1883 í Þýskalandi. Kaweco Sport, þeirra vinsælasti penni í dag byrjaði í framleiðslu árið 1911 og hefur því fyrir löngu sannað gæði sín og tímaleysi. - Góður penni er prýði hvers manns, svo ekki sé talað um hversu góð sóttvörn fellst í því að eiga og ganga með sinn eigin penna. - Hægt er að sérmerkja pennana með vörumerkinu þínu.
Númer 3: El Casco Gjafasett (42,000 - 86,800 kr)
El Casco framleiðir fremstu og fallegustu skirfstofuvörur heims. Það er ekkert sem kemst nálægt El Casco í gæðum, endingu og efnisvali. Heimsklassa vörur í heila öld fyrir þitt allra besta samstarfsfólk.
Númer 4: Falcon Matreiðslusett (14,800 kr)
Falcon matreiðslusettin er klasísk vara sem allir geta notað og endist áratugum saman. Fimm emileraðar skálar ásamt sigti auðveldar ykkur matreiðsluna,er fallegt á borði og fyrirferðalítið upp í skápi. Skálasettið kemur í fallegum gjafakassa sem hentar vel til gjafa.
Númer 5: Blackwing Blýantasett (9,800 kr)
Margir af fremstu rithöfundum, listamönnum og tónlistamönnum heims hafa notað Blackwing blýanta undanfarna öld eða svo. Það jafnast fátt á við það að skrifa með Blackwing blýöntum. Blýantasettið kemur í einstaklega vandaðari öskju sem fegrar hvert vinnuborð.
Númer 6: Krast Steinabók (3,800 kr)
Karst stílabókin, gerð úr endurunnum steinum vekur athygli hvar sem hún fer. Einstök og umhverfisvæn stílabók sem er frábært að skrifa í. Hægt er að fá vörumerkið þitt þrykkta í bókina ásamt sérvöldum litum. Vegna þess að bókin er gerð úr steinum er hún vatnsheld og hentar því vel á þeim vinnustöðum þar sem er mikið um að vera, bleyta og drulla.
Númer 7: VÆNTANLEGT: Trudon Ilmkerti (5,900 - 12,900 kr)
Trudon er elsti kertaframleiðandi heims, stofnað í París árið 1643. Trudon kertin hafa verið notuð af frönskum konungum í árhundruð og hefur Trudon skipað sér sess sem einn fremsti kertaframleiðandi veraldar. Með einstöku vaxi, ómótsæðilegri lykt og handgerðum glerkrukkum sem vekja athygli hvar sem þær eru og fylla heimilin af unaðslegri lykt. - Trudon kertin eru væntanleg í Gömlu Bókabúðina í nóvember.
Númer 8: Sætt og Salt Konfektkassi (2,500 kr)
Það jafnast ekkert á við gott súkkulaði um jólin og þar kemur Sætt og Salt frá Súðavík sterkt inn. Fallegir og bragðgóðir súkkulaðimolar gleðja bæði augun og bragðlaukana.
Svo er auðvitað alltaf líka hægt að gefa fallegt gjafabréf í Gömlu Bókabúðina og leyfa starfsfólkinu þínu að velja sér einhverja fallega gjöf sjálf, eftir sínu áhugasviði.
Hafðu samband í tíma til að fá tilboð í gjafir fyrir þitt fyrirtæki. Við getum einnig pakkað gjöfunum inn og klárað málið að fullu fyrir þig og þitt fyrirtæki.
Með bestu kveðju frá verslunarstjóra,
Eyþór Jóvinsson
jovinsson@gmail.com
s: 840 0600
]]>
Gamla Bókabúðin á Flateyri, eins og hún er jafnan kölluð er elsta upprunalega verslun Íslands. Verslunin hefur verið starfrækt allt frá árinu 1914. Verslunin er enn starfrækt í sama húsnæði með upprunalegum innréttinum og verslunartækin sem við notum í dag hafa staðið vaktina þar frá fyrrihluta seinustu aldar, hvort sem það er viktin, yddarinn, skærin, mælistikur eða annað. Allt hefur þetta staðist tímans tönn, enda vandaðar vörur, gerðar til að endast.
Við viljum þróa verslunarhætti framtíðar í átt til fortíðar. Hvernig væri að hægja aðeins á öllu? Notum minna, notum betur og látum okkur duga það að kaupa hvern hlut aðeins einu sinni yfir ævina. Það græða allir á því, þegar uppi er staðið.
Með þetta að leiðarljósi höfum við jafnt og þétt verið að styrkja vöruúrval okkar í þess átt. Að bjóða upp á vörur og vörumerki sem hafa verið í framleiðslu áratugum og öldum saman. Þetta eru vörumerki sem vita hvað fellst í því að bjóða upp á vandaðar og endingagóðar vörur. Það lifir enginn framleiðandi af í heila öld án þess að bjóða upp á fyrsta flokks vörur og þjónustu.
Meðal þeirra vörumerkja sem Gamla Bókabúðin bíður upp á í dag er Falcon Enamelware (1920), Blackwing (1930), Kaweco (1883) og El Casco (1920) - Samanlagður starfsaldur þessara fjögra vörumerkja og verslunarinnar spannar því 546 ár þegar þetta er ritað. Það er þekking og reynsla sem skilar sér í gæðum og endingu fyrir þig.
Er ekki skemmtilegra, þegar kemur að kveðjustund að skilja eftir sig fallega handgerða erfðargripi, en ruslahauga fulla af einnota drasli?
]]>Með því að taka í gagnið vefverslun verður mun auðveldara að panta vörur frá okkur og fá heimsent, en vöruúrvalið hefur verið að vaxa mikið upp á síðkastið. Bæði höfum við verið að taka inn vandaðar erlendar og innlendar hönnunarvörur ásamt því að vera í framleiðslu á okkar eigin vörum, sem hafa verið mjög eftirsóttar en erfitt að nálgast, nema á Flateyri.
Þá höfum við einnig byrjað að taka til hliðar verðmætar og fágætar bækur sem verða aðgengilegar á vefnum, en áfram verður þó kílóverð á notuðum bókum hjá okkur.
Það er okkur því mikið gleðiefni, að elsta upprunalega verslun Íslands skuli nú státa af yngstu vefverslun landsins.
]]>
Undanfarin ár hefur verslunarstjóri Bókabúðarinnar farið nokkra hringi um Vestfirðina að dreifa Vestfjarðarkorti sem hann gefur út árlega. Hann... já, eða ég, ákvað að setja niður á blað mína uppáhalds staði á Vestfjörðunum, þar sem ég nýt þess að slaka á, borða góðan mat, flakka á milli náttúrulauga og njóta stórkostlegrar náttúru Vestfjarða.
Það væri auðvelt að eyða fleiri vikum á ferð um Vestfirðina, en í þetta sinn ætla ég að miða við fimm daga ferð sem hefst og endar í Reykjavík. Fyrir vikið þarf ég að sleppa mörgum æðislegum stöðum úr ferðalýsingunni, og sjálfsagt er til nægilegt efni til að skrifa upp aðra gjörólíka og frábæra fimm daga ferð um Vestfirði. - En þetta er minn klassíski ferðahringur sem ég fer með mína gesti í þegar mig langar að sýna þeim mína uppáhaldsstaði í akstursleið.
DAGUR 1
Fyrsta skyldustoppið í þessum Vestfjarðarhring er reyndar ekki á Vestfjörðum, en það er Rjómabúið á Erpstöðum, sem selja besta ís Íslands, gerður úr Vestfirskum aðalbláberjum. Þar er einnig óhætt að mæla með gómsætu skyrkonfekti sem hægt er að japla á, á meðan maður fylgist með lífinu í sveitinni.
Leiðin liggur næst á Hólmavík þar sem er tilvalið að fá sér göldrótta súpu á Galdrasafninu samhliða því að kynna sér vestfirskar nábuxur og aðra áhrifamikla galdra. Þegar Galdrasafnið er yfirgefið skal setja Sigur Rós í botn og keyra af stað inn á hinar töfrandi Strandir. Hrikaleg náttúra og klettar í sjófram draga fram hið sanna Ísland. Hvergi á Íslandi skilur maður smæð mannsins eins vel og umvafinn veðurbarinni náttúru svæðisins. Fossar frussast niður allar hlíðar og það er einmitt undir einum slíkum fossi sem að kyngimagnaðasta hótel Íslands er, Hótel Djúpavík! Í Dúpuvík má finna allt til að næra bæði líkama og sál, æðislegur veitingastaður, mögnuð náttúra og einstakar listasýningar í gömlu síldarvinnslustöðinni sem fór í eyði fyrir tæpum 70 árum, en var á sínum tíma langstærsta steinsteypubygging Íslands.
Ef þú hélst að þú værir kominn á enda veraldar í Djúpuvík, þá var það ekki svo, því ef þú keyrir örlítið lengra munt þú finna Krossneslaug sem er án efa einhver stórbrotnasta sundlaug Íslands. Eins og það er nú dásamlegt að svamla í henni í blóðrauðu sólarlagi þá jafnast ekkert við þá upplifun að liggja í heitu vatninu þegar úfið atlandshafið skellur úthafsöldum sínum á kletta og grjót í fjöruborðinu við sundlaugina.
DAGUR 2
Frá Ströndum liggur leiðinn yfir Steingrímsfjarðarheiði og inn í Djúp. Þótt það sé freistandi þjóta í gegnum Djúpið á hraðferð er það vel þess virði að beygja inn Mjóafjörðinn. Þar má meðal annars finna Hörgshlíðarlaug þar sem óðar Instagramhetjur keppast um að mynda sig í. Og þar stutt frá er ævintýraheimurinn í Heydal, þar sem finna má finna fjölbreytta náttúrupotta og suðræna innisundlaug. Það væri í raun auðvelt að skrifa heila fimm daga ferðasögu, bara um Heydalinn því þar má fara á Hestum um fjöll og firnindi eða flakka um fjörðinn á kayak. Þá er ekki óalgengt að bæði Refir og Uglur heimsæki staðinn, en þar eru fyrir bæði vinalegir hundar og talandi páfagaukur sem bíður alla velkomna á milli þess sem hann stríðir fólki með því að leika fjölbreyttar símhringingar.
Mér er það minnistætt þegar ég fékk mér eitt sinn að borða Í Heydal. Þá hafði ég pantað mér bleikju en þegar þjónninn kom inn í eldhúsið heyrði ég kokkinn segja að bleikjan væri búinn. Bauðst þá þjónninn til þess að stökkva niður í vatn og ná í eina Bleikju. Tíu mínútum síðar var ég kominn með einhverja þá bestu bleikju sem ég hef smakkað á diskinn fyrir framan mig.
Örlítið utar í Djúpinu má finna Litlabæ, þar sem er dásamlegt að setjast niður og borða vöfflur með útsýni yfir fjörðinn, eða þá inn í Litlabæ, sem er eins og nafnið gefur til kynna, mjög lítill, þrátt fyrir að þar hafi búið tæplega 30 manns á seinustu öld. frá Litlabæ er frábært útsýni yfir Skötufjörðinn, sem er vinsæll viðkomustaður hvala, eins og reyndar Djúpið allt, enda er það nefnt matarkista Íslands. Í næsta nágreni við Litlabæ er Hvítanes þar sem iðulega má sjá seli sólbaða sig í tuga ef ekki hundraða tali á klettum og steinum í fjörunni.
Á Ísafirði er eina brugghús Vestfjarðar, Dokkan. Þar er tilvalið að setjast niður eftir langan dag og smakka á því besta sem vestfirska vatnið hefur að bjóða upp á í áfengu formi. Tilvalinn fordrykkur fyrir Tjöruhúsið, hafir þú ekki þegar verið búinn að borða á þig gat þann daginn. Það þarf ekki að hafa mörg orð um þann magnaða veitingastað, en hvað sem þú gerir, þá verður þú að smakka Gellurnar hans Magga, þessar stökku með mjúku fyllingunni!
DAGUR 3
Gott er að byrja daginn á kringlu með skinku og osti í Gamla Bakaríinu, slíkt er fyrir löngu orðinn þjóðarréttur Ísfirðinga, ekki að ástæðu lausu, enda fá bakarí sem toppa það Gamla á Ísafirði.
Frá Ísafirði liggur leiðin upp á Bolafjall í Bolungarvík, sem er magnaður viðkomustaður, hvort sem þú vilt freista þess að sjá til Grænlands á heiðskýrum degi eða keyra upp í þá svörtustu þoku sem þú munt upplifa. Þá er stutt stopp í Ósvör aldrei vond hugmynd.
Eftir ferðalag í gegnum tvenn göng frá Bolungarvík yfir í hinn fagra fjallahring Önundarfjarðar er tilvalið að keyra út á Flateyri. Þar er Gamla Bókabúðin auðvitað skyldustopp, elsta upprunalega verslun Íslands. Að stíga þangað inn er eins og að ferðast aftur í tíman. Hvergi á Íslandi hefur verslun og íbúð varðveist jafn vel eins og í Gömlu Bókabúðinni, þar sem gestir geta keypt bækur í kílóavís af langafasyni stofnanda verslunarinnar.
Besta leiðin til að kynnast Önundarfirði er að sigla um hann á Kayak. Þar sem hvítur sandurinn krafsar sig upp úr sægrænum sjónum og fuglar allt um kring. Holtsbyrggja er fyrir löngu orðin þekkt fyrir sína suðrænu sanda, þar sem sundgarpar stinga sér til sunds á meðan krakkarnir busla í sjónum og byggja kastala. Holtssandur er hin sannkallaða sólarströnd Íslands.
Það leiðist svo engum á kvöldin á Flateyri, þar sem ferðaþjónar á svæðinu hafa tekið sig saman um að vera með daglega viðburði í allt sumar, allt frá harðfiskverkun, fræðslugöngur um snjóflóðin og tónleika á hinum sögufræga Vagni. Nánari upplýsingar um daglega viðburði má nálgast á síðunni VisitFlateyri.is
DAGUR 4
Nú fer hver að verða síðastur að fara Hrafnseyrarheiðina áður en göngin á milli Dýrafjarðar og Arnafjarðar opna. Þátt fyrir að vera erfiður vegatálmi á veturna er leiðin ein sú fallegast sem þú munt keyra á ferð þinni um Vestfirði, þar sem Arnarfjörðurinn blasir við þér og vegurinn hlykkjast niður fjallshlíðina. Í botni Arnarfjarðar býr konungur Vestfjarða, sjálfur Dynjandi. Hann er mikilfenglegur úr fjarska en það jafnast ekkert á við það að ganga göngustíginn upp á enda og standa beint undir þessum fegursta fossi Íslands!
Frá Dynjanda liggur leiðin í Reykjafjörð, þar sem hægt er að stinga sér til sunds eða leggjast í sandbotn náttúrulaugarinna sem er þar fyrir ofan. Að sundferð lokinni er komið að Vegamótum á Bíludal, sem er einfaldlega besti hamborgarastaður landsins. Það er leitun að jafn vinalegri sjoppu á landsbyggðinni sem bíður upp á jafn metnaðarfullan mat og á Vegamótum.
Á Bíldudal má finna yndislegt fólk, en þó er hlutfall skrímsla talsvert hærra þar en annarstaðar á Íslandi og því mælum við með því að kynnast þeim í Skrímslasetrinu á Bíldudal, það er æskilegra en að mæta þeim út í fjöru. Ef viðkvæmar sálir og lítil hörtu þurfa smá huggun, fegurð og gleði eftir skrímslakynnin er upplagt að gera sér ferð út í Selárdal, þar sem listamaðurinn með barnshjartað bjó. Það er okkar yndislega Disney veröld. Þar má einnig heimsækja sveitabæ Gísla á Uppsölum.
Á Tálknarfirði er lítil sjálfsafgreiðslufiskibúð sem selur þann ferskasta fisk sem þú færð, og viðskiptahættirnir byggjast á því að treysta því að viðskiptavinirnir greiði fyrir vörurnar. Það verður varla vestfirskara en það. Fyrir þá sem ekki hafa tekið ferðagrillið með sér er tilvalið að snæða kvöldverð í Stúkuhúsinu á Patreksfirði. Þar er boðið upp á dýrindis mat í fallegu húsi með útsýni yfir allan Patreksfjörðinn.
DAGUR 5
Er ekki alltaf best að geyma það besta þar til síðast? Þessi dagur verður að minnsta kosti alveg magnaður fyrir náttúru unnendur. Við byrjum daginn á því að heimsækja hann Garðar gamla, sem er fyrsta stálskip okkar íslendinga, en því hefur verið strandað í Skápadal í Patreksfirði og er skipið eitt af fjölmörgum instagramstjörum Vestfjarða.
Áfram liggur leiðin út á Látrabjarg, sem er 14 km langt og 440m hátt bjarg sem rís úr hafinu, þetta er stærsta fuglabjarg Íslands og fjölmennasta lundavarp heims, þar sem hægt er að komast í ótrúlega nálægð við þennan sendiherra okkar. Ótrúlegt en satt þá eru fleiri og skemmtilegri lundar á Látrabjargi en á Laugaveginum í Reykjavík. Látrabjargið er einnig magnaður staður þegar kemur að sjóslysum og björgunum og því skaltu alls ekki missa af minjasafninu á Hnjóti þar sem fræðast má líf og dauða fólks við Bjargið.
Næst er förinni heitið niður á Rauðasand. Það er töfrum líkast að ganga berfætt út á þennan sólbakaða rauða sand sem virðist engan enda ætla að taka, og þarna svo fjarri allt og öllum má finna lítið franskt kaffihús sem er fallegt vin í þessari blautu, rauðu eyðimörk.
Nú fer að líða að lokum og ferjan Baldur nálgast ófluga til að sækja þig og flytja aftur í gráan hversdagsleikann við Miklubraut. En á meðan þú bíður getur þú notað seinustu andartökin á Vestfjörðum í Hellulaug við Flókalund, þar sem heitt vatnið lekur niður klettana á bakvið þig á meðan þú reynir að telja eyjarnar í Breiðafirði fyrir framan þig.
Allar myndirnar í þessari færslu og fleiri til má finna á Instagramsíðu Eyþórs, verslunarstjóra Gömlu Bókabúðarinnar á Flateyri.
]]>Í dag var útgáfu bókarinnar um Sundkýrina Sæunni fagnað með fjölmenni í Gömlu Bókabúðinni á Flateyri. Nú er loksins þessi magnaða sanna saga um Sæunni komin á prent, þar sem hún flúði örlög sín með sundi yfir Önundarfjörðinn, þegar það átti að leiða hana til slátrunar.
Var helstu persónum sögunar gefin fyrstu eintök bókarinnar við hátíðilega athöfn í Gömlu Bókabúðinni í dag ásamt því sem rithöfundurinn las upp úr bókinni. Bókin er nú fáanleg í öllum betri bókabúðum á Íslandi, og auðvitað Í Gömlu Bókabúðinni á Flateyri, sem er opin alla laugardaga í vetur frá kl. 12:00 – 16:00.
Eyþór, verslunarsjóri Gömlu Bókabúðarinnar og höfundur bókarinnar var einnig í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1 og má lesa nánar um það hér á vefsíður Rúv.
]]>Bókaverzlun Jóns Eyjólfssonar var stofnuð þann 25. maí 1920 og fagnar því aldar afmæli í dag. Bókaverzlunin var í raun sjálfstæð verslun á sér kennitölu sem var rekin samhliða Versluninni Bræðurnir Eyjólfsson sem var stofnuð nokkrum árum fyrr og saman mynda þessar verslanir Gömlu Bókabúðina, eins og við þekkjum hana í dag.
Hér fyrir neðan má lesa bréf ábyrgðarmanna verslunarinnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir að ábyrgjast bóksölu Jóns Eyjólfssonar á sínum tíma.
Við undirritaðir skuldbindum okkur hér með til sem sjálfskuldaábyrgðarmenn, einn fyrir báða og báðir fyrir einn, að ábyrgjast Bóksalafélaginu í Reykjavík full skil samkvæmt lögum þess á andvirði bóka þeirra er herra Jón Eyjólfsson á Flateyri fær hjá því sem útsölumaður nefnds félags. Rísi málsókn út af vanskilum við félagið af hendi herra Jóns Eyjólfssonar, Flateyri skuldbindum við okkur, einn fyrir báða og báðir fyrir einn, samkv. 17. gr. viðskiftaskilyrða Bóksalafélagsins við útsölumenn sína, til að hlíta varnarþingi í slíku máli fyrir gestarétti Reykjavíkurkaupstaðar, sem og öðrum ákvæðum nefndra greinar. Til staðfestu er ábyrgðarskjal þetta af okkur undirskrifað í viðurvist tveggja tilkvaddra votta.
Flateyri, 25. maí 1920
Snorri Sigfússon
Kr. Ásgeirsson
Vitundavottar:
Guðm. Sigurðs
Sturla Ebenenzersson
Í tilefni af tímamótunum létum við slá gullmynt í nafni verslunarinnar. Fyrir utan að vera skemmtilegur safngripur má versla 1 kg af notuðum bókum fyrir hverja mynt. Auk þess að slá mynt í tilefni af afmælinu verður haldin mikil rithöfunda- og tónleikaröð í kaupmannsíbúðinni út árið, og hefst sú dagskrá á sýningu Auðar Jónsdóttir, þar sem hún fjallar um bók sína, Ósjálfrátt, sem gerist að miklu leiti á Flateyri.
]]>Undanfarna daga hefur Gamla Bókabúðin á Flateyri staðið fyrir tveimur skemmtilegum viðburðum á Flateyri. Á laugardaginn kom rithöfundurinn Auður Jónsdóttir til Flateyrar og var með sýningu sína, Auður og Auður, sem hún byggir á bók sinni Ósjálfrátt, sem gerist að miklum hluta á Flateyri þegar Auður bjó þar og vann í fiski. Var sýningin því sett upp í gamalli fiskvinnslu á Flateyri, sem setti sýninguna í skemmtilega og viðeigandi umgjörð sem gladdi áhorfendur. Hátt í hundrað manns mættu á sýninguna og rann allur aðgangseyrir óskiptur til Björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri.
Þriðjudagskvöldið var svo söngvaskáldið Svavar Knútur með stofutónleika í Kaupmannsíbúðinni í Gömlu Bókabúðinni. 30 manns mættu á þá tónleika og var uppselt. Tónleikar Svavars Knúts voru æðislegir, þar sem hann spilaði frumsamin lög í bland við önnur lög ásamt því að lesa ljóð og fara með gamanmál, eins og honum einum er lagið. Það er sjálfsagt ekki hægt að komast í jafn mikla nálægð við listamennina eins og á stofutónleikum í Gömlu Bókabúðinni og umgjörðin algjörlega einstök á Íslandi.
Til stóð að fagna 100 ára bóksölu verslunarinnar með tónleikum, upplestrum og öðrum viðbuðrum allt árið 2020, en vegna Covid hefur sú dagskrá riðlast töluvert, en við erum núna á fullu að bóka og skipuleggja næstu viðburði og því tökum við glöð við öllum ábendingum eða óskum um að fá að koma fram og flytja lög, vera með upplestur eða aðra viðburði í Bókabúðinni í ár.
Ef þú ert listamaður á ferð um landið, heyrðu þá endilega í okkur og við gerum eitthvað skemmtileg saman, hvort sem það er í Bókabúðinni eða á öðrum óhefðbundnum stöðum í Önundarfirði.
]]>