Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.

Karst A4 teikniblokk úr steinapappír.

Venjulegt verð
3.800 kr
Söluverð
3.800 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Gamla Bókabúðin kynnir með teikniblokkir gerðar úr steinum! - Verið velkomin í 21. öldina!  Karst teikniblokkir úr steinum eru eins og teikniblokkir úr pappír, nema miklu betri og umhverfisvænni.

Karst hefur sérhæft sig í framleiðslu á pappír úr steinum, eða Kalsíumkarbónat, sem er unnið úr endurunnum kalsteinum sem falla til við aðra framleiðslu og því þarf ekki að fella eitt einasta tré við framleiðslu á Karst stílabókum.

Það þarf ekkert vatn í framleiðsluna og engin not fyrir hættulegar efnablöndur og sýru til að drepa bakteríur og gera pappírinn hvítan, þar sem kalksteinninn er náttúrulega hvítur. Þá þarf 85% minni orku til að framleiða steinapappír, heldur en pappír úr trjám, sem gerir stílabækurnar alveg einstaklega umhverfisvænar.

Umhverfisspor Karst stílabóka er 60% minna en sambærilegar stílabækur úr trjákvoðu. Að auki plantar Karst nýjum trjám fyrir hverja selda stílabók, þannig að hver bók er kolefnisjöfnuð að fullu.

En hvernig er að skrifa á og nota pappír gerður úr steinum? - Það er frábært! Pappírinn er mýkri viðkomu heldur enn venjulegur pappír, þótt ótrúlegt meigi virðast og fyrir vikið er einstaklega gott að skrifa á hann. Steinapappírinn er mjög endingagóður og erfitt að rífa hann.

Svo er steinapappír auðvitað vatnsheldur, ólíkt hinum hefðbundna pappír. - Því þarf ekki að hafa áhyggjur af því að missa kaffibollan eða vatnsglasið á listaverkin, en athugið að fyrir vikið er hentar pappírinn auðvitað ekkert sérlega vel fyrir vatnsliti.