Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

Carrière Frères hátíðarkerti - Gjafakassi, 3x 70gr
Carrière Frères hátíðarkerti - Gjafakassi, 3x 70gr
Carrière Frères hátíðarkerti - Gjafakassi, 3x 70gr
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Carrière Frères hátíðarkerti - Gjafakassi, 3x 70gr

Venjulegt verð
14.900 kr
Söluverð
14.900 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Carrière Frères er litla systir Trudon, stofnað árið 1884. Kertin frá Carrière Frères eru framleidd undir sama þaki og Trudon, í Normandí í Frakklandi. Á meðan Trudon bíður upp á fágaða, marglaga og flókna lyktaprófíla eru Carrière Frères frábær í einfaldleika sínum. 

Lyktirnar frá Carrière Frères byggjast upp á blómum, ávöxtum og viðartegundum. Hreinar og bjartar lyktir sem draga þig inn í blómagarða, skóga og á ávaxta akra.

Carrière Frères kertaframleiðandinn hlaut gullverðlaun á heimssýningunni í París 1889 fyrir Ilmkerti sín, enda þótti frumkvöðlastarf þeirra einstakt með hönnun á hágæða ilmkertum til að bregðast við aukinni raflýsingu, sem gerði kerti óþörf til ljósgjafar.

Hátíðarkertin frá Carrière Frères eru eftirsótt, fyrir gæði sín og einstöku hátíðarlykt. Þau eru framleidd í mjög takmörkuðu upplagi.

Siberian Pine gjafasett: Í ár er það síberíska furan sem er allsráðandi sem hátíðarlykt, enda einstaklega fögur jólalykt sem flestir kannast við. Kertin koma þrjú saman í fallegri gjafaöskju sem gleður þá sem þiggja og nýtist þeim vel.

Kertin eru úr lífrænt vottuðum evrópskum hráefnum og er gert úr 70gr. af 100% jurtavaxi. Hvert kerti er 7cm hátt og 5,5cm í þvermáli og brennur í 20-25 klst. Ekki er mælt með því að brenna það lengur en 2 klst í senn til að hámarka endingu og lykt.