Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

Sailor 1911 Black Luster Large, Svartur Blekpenni.

Sailor 1911 Black Luster Large, Svartur Blekpenni.

Venjulegt verð
68.000 kr
Söluverð
68.000 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.

Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.

Árið 1969 þróuðu Sailor fyrsta 21 kt. gulloddinn í japan sem er af mörgum talinn einn besti blekoddur sem hefur verið framleiddur í heiminum, enda á mýkt hans og nákvæmi sér enga hliðsvæðu.

Sailor 1911 Black Luster er fallegur penni frá Sailor. Það sem einkennir hann er dökka yfirbragð hans og oddur. Eftirtektaverður penni með einstökum dökkum, 21 kt. gull oddi sem fjaðrar vel sem gefur pennanum frábæra skriftareigileika.

Penninn er svartur með dökkri gyllingu og oddi. Nútímaleg útfærsla á klasískri hönnun frá Japan. Pennin er með innbyggðri blekpumpu til að draga upp blek.

Penninn er 14,1cm langur og 21,4 grömm. Hægt er að velja um stærð oddar. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)

 Penninn kemur í fallegri Sailor gjafaöskju.