Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir 20,000 kr eða meira.

Blekpennar & Viskí - Kvöldstund í Gömlu Bókabúðinni

Blekpennar & Viskí - Kvöldstund í Gömlu Bókabúðinni

Venjulegt verð
3.900 kr
Söluverð
3.900 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Kvöldstund í Gömlu Bókabúðinni á Flateyri þar sem Eyþór kynnir einstakt vöruúrval blekpenna og fylgihluta. Gamla Bókabúðin selur blekpenna frá Kaweco, Sailor og Conway Stewart, sem eru allt framleiðendur sem hafa framleitt blekpenna í meira en hundrað ár.

Eyþór mun kynna mismunandi penna, odda, blek og pappír og hjálpa þér að finna það sem hentar þér og þínum sem best. En fyrst og fremst á þetta að vera skemmtilegt og tækifæri til að kynnast gleymdum blekpennaheimi.

Með einka blekpennakynningunni verður boðið upp á viskí og verslun Gömlu Bókabúðarinnar verður opin, þar sem er að finna frábært úrval af vönduðum vörum frá framleiðendum sem eiga það flestir sameiginlegt að hafa starfað lengur en í hundra ár og fást hvergi annarstaðar á Íslandi. - Fullkomið fyrir jólagjafainnkaupin.

Skemmtileg kvöldstund fyrir vina- eða vinnuhópinn, saumaklúbbinn, fjölskylduna eða aðra skemmtilega hópa sem vilja hafa gaman saman,  fá sér viskí og kynnast frábærum blekpennum.

HVAÐ ER INNIFALIÐ:
Verð á hvern þátttakanda er 3,900 kr og innifalið er skemmtileg blekpennakynning, viskí og 3,900 kr inneign á mann, sem er hægt að nota í versluninni um kvöldið. (Aðeins er einn hópur í einu og því fær þinn hópur einkakynningu.)

HVERNIG BÓKA ÉG FYRIR HÓPINN MINN:
Lágmarks fjöldi er sex manns og tólf að hámarki. - Til að panta blekpennakynningu er viðeignadi dagsetning valin og fjöldi þátttakenda og greitt fyrir með korti.

FREKARI UPPLÝSINGAR:
Til að fá frekari upplýsingar eða óskir um aðrar dag- og tímasetningar en þær sem er boðið upp á hér er best að hafa samband við Eyþór í síma 840-0600 eða netfanginu jovinsson@gmail.com