Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

5x B7 Galen Leather stílabók með 52 gsm Tomoe River pappír
5x B7 Galen Leather stílabók með 52 gsm Tomoe River pappír
5x B7 Galen Leather stílabók með 52 gsm Tomoe River pappír
5x B7 Galen Leather stílabók með 52 gsm Tomoe River pappír
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, 5x B7 Galen Leather stílabók með 52 gsm Tomoe River pappír

Venjulegt verð
4.600 kr
Söluverð
4.600 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Fimm fallegar handsaumaðar B7 stílabækur úr smiðju Galen Leather. Bækurnar eru litlar með auðum síðum.

Japanski Tomoe River pappírinn er einstakur og uppáhald allra sem skrifa með blekpenna. Pappírinn er einstaklega fíngerður og þunnur, en tekur gríðalega vel við bleki úr blekpennum og er af mörgum talinn allra besti pappír heims fyrir blekpenna. - Maður verður eigilega að prófa að skrifa á Tomoe River pappír til að skilja út á hvað þessi ást gengur.

Bækurnar koma í fallegum poka sem er bæði falleg til gjafar og til að geyma bækurnar í.

Hver bók er í stærðinni B7 (55 x 90 mm) og iniheldur 64 auðar blaðsíður. Fullkomin, lítil stærð í veskið þitt eða í vasa.

Galen Leather var stofnað árið 2012 af Zeynep í Istanbúl í Tryklandi. Zeynep greindist með krabbamein í hálsi árið 2012 og undirgekst meðferð sem varð þess valdandi að hún gat ekki talað. Fyrir vikið fór hún að hanna og sauma fallega hluti úr leðri og seldi í gegnum vefverslun, þar sem hún gat átt í samskiptum í gegnum tölvupósta og þurfti ekki að tala við viðskiptavini sína. Reksturinn blómstraði og stækkaði ört á næstu árum, enda lagði hún miklá áherslu að að handvinna vörurnar sínar úr hágæða hráefni sem veðrast og eldist vel. 

Zeynep lést árið 2019 eftir baráttu við krabbamein og sér nú bróðir hennar um reksturinn í minningu hennar þar sem áfram er lögð áhersla á hágæða handverk úr fyrsta flokks hráefni.