
Það jafnast ekkert á við Crane merkimiðana sem gera fallegan pakka ennþá fallegri.
Crane pappírsframleiðslan á sér rúmlega 250 ára sögu, stofnuð árið 1770 í Bandaríkjunum. Frá fyrsta degi hefur Crane verið leiðandi í pappírsframleiðslu, hvort sem það er hinn einstaki bómullarpappír sem Crane hefur framleitt fyrir Bandaríska peningaseðla í 200 ár eða boðskort í sögulegar veislur og viðburði að ógleymdum jólakortunum sem helstu forsetar og konungar heims hafa sent undanfarin 250 árin.
Crane pappírinn er gerður úr 100% bómull sem gefur pappírnum mýkri og bjartari áferð sem tekur vel við bleki og skilar fallegum, sterkum litum.
Það þarf ekki að fella nein tré við gerð Crane pappírs og framleiðslan þarfnast minna af vatni og óumhverfisvænum efnum við framleiðsluna. Pappírinn er sýrufrír og margfallt endingarbetri en hefðbundinn pappír.
Askjan inniheldur 6 merkimiða. 100% bómullarpappír með áþrykktri mynd og gyllingu.