
Vandaður gjafapakki frá Gömlu Bókabúðinni sem er gaman að gefa og enn skemmtilegra að opna. - Einföld og þægileg lausn þegar gefa á gjöf.
Gjafapakkinn inniheldur trélitasett frá Blackwing og jólabókina Frankensleikir, árituð af Eiríki Erni Norðdahl og stimpluð af Gömlu Bókabúðinni. Frábær bók sem krakkarnir geta gert enn litríkari.
Gjafapakkinn er 22x22x14cm að stærð og inniheldur vörurnar ásamt pappírskrullum, vörunum er pakkað inn í silkipappír og pakkinn svo hnýttur með snærisspotta sem er innsiglaður með fallegu vaxi sem er merkt Gömlu Bókabúðinni á Flateyri.
Í pakkanum leynist jafnframt kort frá Gömlu Bókabúðinni sem gefur afslátt á vefverslun okkar og þrír pakkar fyrir jólin 2022 munu innihalda óvænta 15,000 kr gjafabréf í Gömlu Bókabúðinni.
Innpökkun gæti verið önnur en sést á myndinni, en vörurnar verða alltaf amk. pakkaðar inn í silkipappír og settar í kassa eða gjafapappír, vafið inn með snæri og innsiglað af Gömlu Bókabúðinni.