
Vandaður gjafapakki frá Gömlu Bókabúðinni sem er gaman að gefa og enn skemmtilegra að opna. - Einföld og þægileg lausn þegar gefa á gjöf.
Gjafapakkinn inniheldur tvær handgerðar súkkulaðiplötur frá Sætt og salt, tvær sultur frá Litlabýli, Salt frá Fisherman og Saltverk og Kandískrukka. - Sannkölluð sælkeraveisla!
Gjafapakkinn er 22x22x14cm að stærð og inniheldur vörurnar ásamt pappírskrullum, vörunum er pakkað inn í silkipappír og pakkinn svo hnýttur með snærisspotta sem er innsiglaður með fallegu vaxi sem er merkt Gömlu Bókabúðinni á Flateyri.
Í pakkanum leynist jafnframt kort frá Gömlu Bókabúðinni sem gefur afslátt á vefverslun okkar og þrír pakkar fyrir jólin 2022 munu innihalda óvænta 15,000 kr gjafabréf í Gömlu Bókabúðinni.
Litur á vörum, pappír, silkipappír, pappírskrullum og vaxi gæti verið annar en er á myndinni.