
Vandaður gjafapakki frá Gömlu Bókabúðinni sem er gaman að gefa og enn skemmtilegra að opna. - Einföld og þægileg lausn þegar gefa á gjöf.
Gjafapakkinn inniheldur Sjóarahúfu og bambus sokka frá Kormáki og Skildi. Hlý og notaleg gjöf sem er þó um leið einstaklega smekkleg og smart.
Gjafapakkinn er 22x22x14cm að stærð og inniheldur vörurnar ásamt pappírskrullum, vörunum er pakkað inn í silkipappír og pakkinn svo hnýttur með snærisspotta sem er innsiglaður með fallegu vaxi sem er merkt Gömlu Bókabúðinni á Flateyri.
Í pakkanum leynist jafnframt kort frá Gömlu Bókabúðinni sem gefur afslátt á vefverslun okkar og þrír pakkar fyrir jólin 2022 munu innihalda óvænta 15,000 kr gjafabréf í Gömlu Bókabúðinni.
Litur á vörum, pappír, silkipappír, pappírskrullum og vaxi gæti verið annar en er á myndinni.