
Kaweco er hágæða þýskur pennaframleiðandi sem hefur verið starfræktur frá árinu 1883. Kaweco pennarnir eru þekktir fyrir afbragðs gæði á viðráðanlegu verði, sem gerir þá vinsæla penna til daglegra nota.
Kaweco DIA2 blekpennarnir byggja á gamalli hönnun frá árinu 1920. Einstaklega glæsilegur, handgerður penni úr meira en 20 pörtum. Þetta er penni frá gullaldarárum Þýskalands, hvort sem það var á sviði lista eða vísinda, sem endurspeglast í pennanum.
Pennin er gerður úr hágæða akrílblöndu sem endist áratugum saman og þolir mikla notkun. Oddurinn er gerður úr gullhúðuðu stáli.
Penninn er 13 cm lokaður og kemur í fallegri svartri gjafa- og geymslu öskju.
Penninn tekur standard blekhylki, sem fást í mörgum litum.