Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20,000 kr.

Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni
Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni
Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni

Kerti & Kampavín - Kvöldstund og Gisting í Gömlu Bókabúðinni

Venjulegt verð
60.000 kr
Söluverð
60.000 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Komið vestur í verslunarferð og kertakynningu í Gömlu Bókabúðinni á Flateyri. Svo gistir hópurinn saman í Kaupmannsíbúðinni á Flateyri og á saman ógleymalegt ferðalag.

Hópurinn fær einka kertakynningu og kampavín á föstudagskvöldinu í Gömlu Bókabúðinni á Flateyri þar sem Elín kynnir elsta kertaframleiðanda heims, Trudon frá Frakklandi sem var stofnaður árið 1643. Elín kynnir jafnt klasísku Trudon kertin sem og jólakertin 2022 ásamt Carriere Freres sem er systurframleiðandi Trudon.

Töfraheimur ilmkertana frá Trudon hefur vakið athygli í tæplega 400 ár, enda nýtir Trudon sömu ilmkjarnaolíur og frönsku ilmvötnin sem allir þekkja og elska.

Með kertakynningunni verður boðið upp á kampavín og verslun Gömlu Bókabúðarinnar verður opin, þar sem er að finna frábært úrval af vönduðum vörum frá framleiðendum sem eiga það flestir sameiginlegt að hafa starfað í meira en hundrað ár og fást hvergi annarstaðar á Íslandi. - Fullkomið fyrir jólagjafainnkaupin.

Skemmtileg dagsferð og næturgisting fyrir vina- eða vinnuhópinn, saumaklúbbinn, fjölskylduna eða aðra skemmtilega hópa sem vilja hafa gaman saman, fá sér búbblur og lykta á leyndardómum Trudon.

GISTIHEIMILIÐ:
Kaupmannsíbúðin í Gömlu Bókabúðinni er einstök íbúð sem inniheldur þrjú tveggja manna herbergi sem eru með tvíbreiðum rúmum. Íbúðin er rúmgóð, með fullbúnu eldhúsi og tveimur baðherbergjum.

HVAÐ ER INNIFALIÐ:
Verð fyrir hópinn er 60.000 kr og innifalið er gisting fyrir allt að sex manns í eina nótt, morgunmatur, kertakynning og kampavín. Að auki fær hópurinn 30.000 kr gjafabréf sem er hægt að nota í versluninni á meðan þið dveljið þar.

HVERNIG BÓKA ÉG FYRIR HÓPINN MINN:
Alls geta sex einstaklingar gist í Kaupmannsíbúðinni, verðið er fast 60.000 kr þótt gestir séu færri. - Til að panta kertakynningu og gistingu er viðeignadi dagsetning valin og greitt fyrir með korti.

FREKARI UPPLÝSINGAR:
Til að fá frekari upplýsingar eða óskir um aðrar dag- og tímasetningar en þær sem er boðið upp á hér er best að hafa samband við Elínu í síma 823-8020 eða netfanginu elinfridriks@gmail.com