
Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Trudon kertin hafa fyrir löngu skipað sér sess og verið leiðandi í veraldarsögunni, til að mynda var Trudon fyrsti framleiðandi heims til að framleiða kerti úr býflugnavaxi, en í dag er vaxið unnið úr plöntum og eru kertin því fullkomlega vegan. Hluti af hverju seldu Trudon kerti fer til verndunar býflugna í útrýmingarhættu. Slagorð Trudon er “Deo regique laborant” sem þýðir, "Býflugurnar vinna fyrir Guð og Konung."
Trudon eru heimsklassa lúxus kerti sem vekja athygli hvar sem þau eru, bæði vegna einstakrar lyktar og óviðjafnanlegt útlit.
Alabaster kertin eru skorin út úr samnefndum steini, sem hefur verið í hávegum hafður allt frá Grikkjum til forna, Egypta og Rómverja. Kertaglösin eru skorin út úr heilum steinblokkum og hand mótuð í hið einstaka Trudon lag. Engin tvö kerti eru eins. Ljós marmara steinnin hleypir mjúkri og fallegri birtu í gegnum sig. Alabaster kertin eru mikið stofustáss og merki um fágaðan smekk og fegurðarskyn.
HÉMÉRA lyktin: Kóríander og bleik piparkorn.
Forn grísk gyðja, Héméra táknar jarðarljósið sem hreinsar nóttina og boðar norðurljós. Ferskt og umvefjandi, ilmvatnið endurspeglar gegnsæi alabasterílátsins sem lýsir upp og skapar hlýjan geislabaug. Ferskir og kryddaðir höfuðtónar, kóríander og bleik piparkorn eru sameinuð með næmari grunntónum: teak, sandelviður og kashmere viður gefa ilmvatninu milda náttúru og sýna asískt landslag. Héméra kallar á andlegt ferðalag, lýsandi flótta um ókannaðar svæði Búrman, slóðir búddista og Kathmandu, höfuðborg vakningar.
Lyktarprófíll:
Höfuð: Reykelsi og Rós
Hjarta: Sedrusviður, Iris, Múskat
Grunnur: Brennisteinn, Patchouli og Sandelviður
Kertið er 270gr í handgerðu Alabaster glasi, H: 10,5 cm Ø: 9 cm og brennslutími ca. 55-60 klst. Kerið kemur í fallegri Trudon gjafaöskju.
Varðandi umhirðu og brennslu á kertinu er mikilvægt að brenna kertið ekki í meira en 2 klst í senn, þangað til að kertið hefur brunnið niður um einn þriðja, eftir það borgar sig að brenna það ekki í meira en einn klukkutíma í senn. - Það er eins mikilvægt að passa upp á það að bræða allt efsta lag kertisins í hverjum bruna. Með því verður komið í veg fyrir að kertið brenni sig hraðar niður í miðjunni. Sé þetta gert á kerið að brenna í fullkomnu jafnvægi niður á botn. Látið kertið ekki standa í dragsúr eða nálægt eldfimum efnum, til að mynda gardínum sem geta skapað brunahættu.